Samkeppnislög

117. fundur
Fimmtudaginn 25. febrúar 1993, kl. 11:42:12 (5417)

     Kristín Ástgeirsdóttir :
    Virðulegi forseti. Að felldri þeirri brtt. sem hér var borin upp fyrir augnabliki síðan treysti ég mér ekki til þess að styðja þetta frv. og ég harma það mjög að svona fór því að hér er að öðru leyti um mjög gott mál að ræða og efh.- og viðskn. hefur lagt mikla vinnu í að gera þetta frv. eins vel úr garði og mögulegt er. Ég harma að ekki skuli vera meiri vilji til samstarfs milli stjórnar og stjórnarandstöðu en hér hefur komið í ljós. Ég greiði ekki atkvæði.