Ávana- og fíkniefni

117. fundur
Fimmtudaginn 25. febrúar 1993, kl. 13:20:13 (5436)

     Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson) :
    Frú forseti. Í þessu frv. um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni er lagt til að sams konar ákvæði verði fellt inn í lögin um ávana- og fíkniefni og kveðið er á um í frv. um breytingu á almennum hegningarlögum og ég hef gert grein fyrir undir fyrri dagskrárlið og vísa ég til almennra athugasemda með því frv. og greinargerðar minnar um það efni. Ég legg til að þessu frv., frú forseti, verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. allshn.