Herjólfsdeilan

117. fundur
Fimmtudaginn 25. febrúar 1993, kl. 16:01:44 (5469)

     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Vegna orða hæstv. samgrh. er ég honum sammála um að vitanlega hefði átt að láta hann vita af þessari umræðu. Sá forseti sem nú situr hafði hins vegar engin tök á að annast það og því síður telur forseti að þetta óhapp hafi nokkuð með þingsköp þingsins eða uppbyggingu þess að gera heldur hefur einhverjum láðst að láta hæstv. ráðherra vita og ég harma það að sjálfsögðu.