Kaup á björgunarþyrlu

117. fundur
Fimmtudaginn 25. febrúar 1993, kl. 16:16:38 (5475)

     Árni Johnsen (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Maður getur nú þakkað guði fyrir að hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson er ekki löggilt orðskýringabók því að það bessaleyfi sem hv. þm. tekur sér í það að gera mönnum upp skoðanir er náttúrlega sérkapítuli í sögu Alþingis, að því leyti forvitnilegt en ekki til fyrirmyndar.