Kaup á björgunarþyrlu

117. fundur
Fimmtudaginn 25. febrúar 1993, kl. 16:59:41 (5487)

     Guðrún Helgadóttir (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég ætla aðeins að spyrja einnar spurningar. Hæstv. forsrh. sagði að hér væri ekki neyðarástand. Ég vil spyrja hæstv. forsrh.: Finnst honum ekki vera neyðarástand þegar nokkrir ungir menn láta lífið hér við ströndina vegna þess að þyrla Landhelgisgæslunnar var biluð vestur á fjörðum og ekki náðist nógu fljótt í björgunarflugvél frá varnarliðinu? Hvað finnst hæstv. forsrh. vera neyðarástand?