Forsætisráðherra (Davíð Oddsson)
(andsvar)
:
Hæstv. forseti. Þetta mál var eitt einu sinni áður dregið með dapurlegum hætti inn í þessa umræðu, mjög ósmekklegum og dapurlegum hætti og það er gert aftur núna. Við vitum öll að ástæður þess að ekki tókst þar að bjarga mannslífum að talið er að menn hringdu ekki í þann liðskost sem fyrir hendi var. Það er mjög ósmekklegt og langt fyrir neðan virðingu manna að draga þetta mál hér upp með þessum hætti eins og gert var hér á sínum tíma. Það er þingmanninum til stórlegs vansa.