Kaup á björgunarþyrlu

117. fundur
Fimmtudaginn 25. febrúar 1993, kl. 17:16:55 (5501)

     Ólafur Ragnar Grímsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það skal virt að hæstv. forsrh. hefur viðurkennt að ríkisstjórnin muni ganga til samninga. En þar með er texta heimildarinnar í fjárlögum ekki lokið því það stendur einnig ,,og taka til þess nauðsynleg lán``, hæstv. forsrh. Því er spurt: Gildir það þá líka um þann lið heimildarinnar að taka til þess nauðsynlegt lán svo hægt sé að fjármagna gjörninginn? Ég óska eftir jafnskýru svari við því. Ef það kemur ekki, þá er auðvitað vafinn áfram.