Guðrún J. Halldórsdóttir
:
Virðulegi forseti. Hv. 2. þm. Vestf. hefur vakið máls á mjög athyglisverðu efni. Annars vegar því að Háskóli Íslands greiðir 20% í einkaleyfisgjald, sem kannski er í rauninni ekki réttlátt vegna þess að einkaleyfi er ekki lengur fyrir hendi, og hins vegar því að aðrir háskólar í landinu hafa ekki neinn möguleika á að efla tekjur sínar á sama hátt og Háskóli Íslands. Þarna stöndum við frammi fyrir tvíþættu máli. Annars vegar hvort háskólinn á yfirleitt að borga þetta einkaleyfisgjald og hins vegar því að aðrar stofnanir á háskólastigi en Háskóli Íslands hafa ekki slíkan möguleika á að auka sjálfstæðar tekjur sínar.
Fari svo að það verði álit menntmrn. og hins háa Alþingis að Happdrætti Háskóla Íslands eigi að greiða einkaleyfisgjald, sem ég efast ekki um að verði athugað í þessu sambandi, þá finnst mér þessu einkaleyfisgjaldi langbest varið í það að styrkja aðrar stofnanir á háskólastigi.
Auðvitað er góðra gjalda vert að styðja við alla vísindastarfsemi á íslandi eins og fram hefur komið, en vísindastarfsemi á Íslandi verður afskaplega takmörkuð ef háskólar okkar útskrifa ekki fólk sem er mjög fært til vísindastarfa. Grundvöllurinn fyrir vísindastarfi á Íslandi er í framhaldsskólum og háskólum landsins. Þess vegna erum við að leggja grunn að efldu vísindastarfi með því að efla skólana.
Ég vil aðeins undirstrika það að eigi Happdrætti Háskóla Íslands samkvæmt lögum og eðli málsins að borga þessi 20% í einkaleyfisgjald, þá finnst mér tillaga hv. 2. þm. Vestf. mjög réttmæt og rétt að þetta fé fari beint til hinna háskólanna sem eru í landinu núna eða kunna að koma fram á sjónarsviðið.