Sveitarstjórnarlög

121. fundur
Fimmtudaginn 04. mars 1993, kl. 11:49:04 (5593)

     Páll Pétursson (andsvar) :
    Frú forseta. Það getur skeð að orðið æðibunugangur fari eitthvað í taugarnar á hæstv. ráðherra en ég held að við getum ekki deilt um að það var farið hratt af stað og stemningin er að breytast. Ég hefði mjög gjarnan viljað heyra ráðherrann lýsa því yfir hér úr ræðustól að hún mundi ekki beita sér fyrir lögþvingaðri sameiningu sveitarfélaga.