Ingibjörg Pálmadóttir
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Ég ætla bara að vekja athygli á því sem hv. síðasti ræðumaður sagði áðan að sameiningin strandaði fyrst og fremst á oddvita lýðræðis, svo ég orði það eins og ég skildi hv. þm. Það strandi ekki á öðru en því að menn vilja ekki missa spón úr aski sínum. Sveitarstjórnarmenn sem stjórna þessum sveitarfélögum eru þeir sem standa á bremsunni. Þá ætla ég að ítreka það enn og aftur sem ég var að segja hér áðan að kannski er fólk hrætt vegna þess að það koma vissar leiftursóknir ofan frá, frá ríkisstjórninni, sem valda því að allir fara í baklás. Þess vegna er svo mikilvægt að þessi umræða færist til íbúanna sjálfra og þeir fái að skoða það hvort sameining geti stuðlað að betri og aukinni þjónustu í sveitarfélaginu. Ef fólk fengi að skoða það t.d.: Á ég meiri möguleika á dagvistarplássi fyrir barnið mitt? Á ég meiri möguleika á dvalarheimilisplássi fyrir aldraðan einstakling o.s.frv.? Á þetta plan þarf að koma umræðunni vegna þess að ef um slík hagkvæmnismál er ekki að ræða, þá hefur sameining út af fyrir sig ekkert að segja. Þetta skiptir mestu máli að mínu áliti og ég vildi vekja athygli á því.