Pétur Sigurðsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Það kom fram hér og sannaðist á ræðu hv. 5. þm. Vestf. að hann sem sveitarstjórnarmaður undirstrikaði það sem ég sagði hér í fyrri ræðum mínum að það eru einmitt sveitarstjórnarmennirnir sem tefja framgang þessa máls að sameina sveitarfélög eða umræðuna um það og mótunina eða stefnuna í þeim málum. Þessi ræða hans var alveg dæmigerð fyrir það. Reyndar blandaði hann svo inn í skýrslugerð frá Byggðastofnun sem ég tel að stjórn Byggðastofnunar hljóti að bera ábyrgð á og þá fulltrúi Alþb. í þeirri stjórn eins og aðrir. Það er reyndar svo með skýrslur frá Byggðastofnun að þeim hefur nú rignt yfir menn í gegnum árin undir mismunandi forsæti ýmissa manna og auðvitað verða þeir aumingja menn sem þar eru að hafa eitthvað að gera og því eru þessar skýrslur tilkomnar að mestu leyti.
Hitt undraði mig mest og það er þetta furðulega afturhald hjá hv. 5. þm. Vestf. í sambandi við sameiningarmálin þegar hann segir: Hvað er aumingja konan í Suðursveit bættari með því þó að sveitarfélögin í Skaftafellssýslu sameinist? Á hún að leita til Hafnar með sína þjónustu? Hvað er konan í Ögurhreppi bættari gagnvart dagvistarplássi ef það er á Ísafirði. Dettur manninum ekkert í hug að sameiningin sé gerð líka með það í huga að þeir sterkari styðji hina veikari eða er jafnaðarmennskan hjá þingmanninum, sem segist vera sjálfstæðisflokksmaður með litlu s-i, svona lítil? Kemur hann ekki auga á það að sameiningin er einmitt líka jafnaðarmennska? Hún er til þess að þeir sterku styðji hina veiku og það hlýtur að vera augljóst öllum mönnum.
Sú forræðishyggja sem menn eru alltaf að tala um hér og óttast og telja að félmrh. hafi sent menn út af örkinni með ákveðin skilaboð eða ákveðin fyrirmæli er alrangt eins og hefur komið fram hér áður. En ég undirstrika það sem ég hef sagt áður að það þarf að ýta á eftir sveitarstjórnarmönnum um umræðu og ákvarðanir í þessum málum.