Framkvæmdaáætlun til að ná fram jafnrétti kynjanna

121. fundur
Fimmtudaginn 04. mars 1993, kl. 14:47:36 (5632)

     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Varðandi beiðni hv. 18. þm. Reykv. um það að forseti reyni að finna leið til þess að gefa hv. þm. meiri tíma til að ræða þessa till. til þál., þá telur forseti sér skylt að stjórna fundi samkvæmt þingsköpum og gerir það samkvæmt 44. gr. þingskapa og mun gera það hér eftir sem hingað til og vonast eftir að hv. þm. uni þeim ákvæðum sem þar standa og þeir hafa gengist undir.