Stuðningur við réttindabaráttu Eystrasaltsríkjanna á alþjóðavettvangi

122. fundur
Föstudaginn 05. mars 1993, kl. 15:16:20 (5729)

     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseta urðu á þau leiðu mistök í gær, sem eru honum raunar óskiljanleg, að hringja bjöllu þegar hv. 1. flm. var rétt hálfnaður með mál sitt og missti hann því átta mínútur af lögmætum ræðurétti sínum. Forseti harmar þetta að sjálfsögðu en getur ekki annað gert í því máli, en vill nú gera hv. 3. þm. Reykv. það tilboð að hefja mál sitt að nýju og hafa til þess eins og honum ber 15 mínútur. Ég vil spyrja hv. 3. þm. Reykv. hvort hann vill ekki þiggja þetta boð sem afsökun fyrir afleitri frammistöðu forseta og hefja nú mál sitt.