Tækniskóli Íslands

123. fundur
Mánudaginn 08. mars 1993, kl. 15:58:27 (5768)

     Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Af því að fundartími er úti þá vil ég aðeins nota andsvar til að svara einni spurningu af mjög mörgum sem ég þarf hins vegar að svara og það er spurningin um það hvort Alþfl. hafi samþykkt að þetta frv. yrði flutt. Svarið við því er já. Þingflokkur Alþfl. samþykkti framlagningu þessa frv. Ég hef hins vegar engar nýjar fréttir af því hvort formaður þingflokks Alþfl. er farinn að bera ábyrgð á núv. menntmrh. Ég hef engar nýjar fregnir af því og skiptir svo sem ekki öllu máli fyrir mig.