Tækniskóli Íslands

123. fundur
Mánudaginn 08. mars 1993, kl. 15:59:18 (5769)


     Svavar Gestsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Það er athyglisvert að hæstv. menntmrh. skuli vera sama um það hvort formaður þingflokks Alþfl. styður hann eða ekki. Það er afar fróðlegt að heyra. En það sem ég spurði um var ekki það hvort Alþfl. hefði samþykkt að flytja frv., heldur hvort það lægju fyrir einhverjir efnislegir fyrirvarar frá Alþfl., varðandi stuðning við þetta frv. sem gengur út á að strika út ríkisstuðning við Tækniskóla Íslands.