Forsætisráðherra (Davíð Oddsson)
:
Virðulegi forseti. Þau frumvörp sem hv. 9. þm. Reykv. nefndi eru mjög umfangsmikil, a.m.k. sum þeirra, og er ljóst að þó að báðir stjórnarflokkarnir hafi ekki enn þá gengið frá þeim fyrir sitt leyti er ekki um að ræða neinn meiri háttar ágreining á milli flokkanna. Hins vegar er mjög áríðandi að þessi frumvörp fái mjög vandaða meðferð af hálfu stjórnarflokkanna áður en þau eru endanlega tekin til afgreiðslu í þinginu. Sjálfstfl. hefur lagt mikla vinnu í þessi mál eftir að þau hafa borist frá heilbrrh. og ég á von á því að góð sátt náist um þau. Ég skal ekki um það spá á þessu stigi hvort þessi mál fái afgreiðslu í þinginu á þeim tveimur mánuðum sem starfsáætlun þingsins gerir ráð fyrir að við höfum til starfa enn þá. En það hefur verið unnið vel í málinu og verður það áfram.