Guðrún J. Halldórsdóttir
:
Virðulegi forseti. 17. febr. sl. söfnuðust konur saman á Austurvelli til að mótmæla þeim skelfingum og hörmungum sem dynja yfir kynsystur þeirra í Mið-Evrópu á þessum mánuðum. Á fundinum var hæstv. forsrh. fært mótmælaskjal og áskorun um að beita sér fyrir því að farið yrði með nauðganir sem og stríðsglæpi. Hvernig hugsar hæstv. forsrh. sér að verða við þeirri áskorun, hefur hann gert eitthvað nú þegar og hvernig hugsar hann sér að framfylgja þeim tilmælum sem hann tók mjög ljúfmannlega á móti 17. febr.? Konur úr öllum flokkum, úr öllum stéttum og alls konar félögum söfnuðust þarna saman og ég get fullyrt það að allar íslenskar konur hafa staðið heils hugar á bak við áskorunina.