Forsætisráðherra (Davíð Oddsson)
:
Virðulegi forseti. Ég get tekið undir með hv. 15. þm. Reykv. að þessi fundur, sem haldinn var í rigningarveðri 17. febr., var áhrifamikill og táknrænn og fréttir um hann hafa auðvitað borist frá landi okkar. Samsvarandi fundir og mótmæli voru á sama tíma annars staðar í veröldinni. Þar sem þessi mál hafa verið til umræðu hefur þess verið gætt af hálfu íslenskra stjórnvalda að láta þess getið að við höfum áhyggjur af ástandinu í fyrrverandi Júgóslavíu. Þetta efni hefur vakið sérstakan viðbjóð allra vel meinandi manna um alla veröld. Við munum halda áfram að koma þessu á framfæri þar sem við getum, en við skulum ekki ímynda okkur að við getum verið nein forustuþjóð í þessum efnum. En ég tek undir með hv. þm. að það er mikilvægt að við leggjum lóð okkar á vogarskálar hvað það snertir.