Eftirlit með störfum bústjóra og skiptastjóra

124. fundur
Þriðjudaginn 09. mars 1993, kl. 14:04:41 (5795)

     Guðrún J. Halldórsdóttir :
    Virðulegi forseti. Er það þá þannig að af hálfu hins opinbera er ekkert sérstakt eftirlit með þessu? Þetta sé einkamál hvers aðila fyrir sig, er þessum málum þannig háttað? Ef svo er þá held ég að þetta sé rangt fyrirkomulag, það ættu að vera einhverjir opinberir aðilar eða einhverjar stofnanir sem hægt væri að vísa slíkum málum til.