Eftirlit með störfum bústjóra og skiptastjóra

124. fundur
Þriðjudaginn 09. mars 1993, kl. 14:05:19 (5796)

     Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson) :
    Frú forseti. Skiptastjórarnir eru skipaðir til þess að fara með stjórn þrotabúsins og stýra því að réttra reglna sé gætt við skipti og lok þessara búa sem hér eiga hlut að máli. En enn hefur engum dottið í hug að setja sérstaka eftirlitsstofnun yfir skiptastjórana.