Tækniskóli Íslands

124. fundur
Þriðjudaginn 09. mars 1993, kl. 14:27:45 (5802)

     Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég hélt ég hefði verið búinn að svara því hvers vegna þessi málsgrein var tekin út. Það er vegna þess að það er verið að samræma þetta þeim lagabálkum sem ég hef margtalið upp og gilda um skóla á háskólastigi. Þannig var það nú.
    Ég held að ég sé ekkert að upplýsa hver skólagjöldin eru við Samvinnuháskólann fyrst skólanefndarmaðurinn vill ekki gera það.