Tækniskóli Íslands

124. fundur
Þriðjudaginn 09. mars 1993, kl. 15:19:25 (5811)

     Svavar Gestsson (andsvar) :
    Nú mun ég hlíta ábendingum hæstv. forseta mjög nákvæmlega og þakka hæstv. menntmrh. fyrir það að hann staðfestir tímamótin. Í fyrsta sinn í sögunni eru gjöld sem tekin eru af nemendum tekin inn í fjárlög íslenska ríkisins til að lækka framlög til skólanna frá því sem ella hefði verið. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að viðurkenna það að hér eru tímamót á ferðinni, hafa birst í fjárlögum en núna á að staðfesta með nýjum lögum um Tækniskóla Íslands.