Tækniskóli Íslands

124. fundur
Þriðjudaginn 09. mars 1993, kl. 15:23:26 (5815)

     Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson) (andsvar) :
    Herra forseti. Nei, ég get því miður ekki upplýst hvaða byggingarsjóður þetta er, en ég hef einhvern veginn ekki trú á því að þeir séu að safna í sjóð fyrir ríkið til þess að byggja yfir Tækniskólann. Ég get því miður ekki upplýst hvaða byggingarsjóður þetta er. En þetta gefur mér tilefni til þess að kanna það.