Fyrirspyrjandi (Ingibjörg Pálmadóttir)
:
Virðulegi forseti. Fsp. mín er á þskj. 622 og er til sjútvrh. Hún er svohljóðandi:
,,Hyggst ráðherra banna dragnótaveiðar í Faxaflóa?``
Það er gömul og ný saga að mjög skiptar skoðanir eru um ágæti þess að leyfa dragnótaveiðar í Faxaflóa en í Faxaflóa eru mjög mikilvægar uppeldisstöðvar bolfisks. Af þessum ástæðum var sú ákvörðun tekin 1971 að banna dragnótaveiðar með lögum. Þeir sem stunduðu veiðar í Faxaflóa á bannárum dragnótar segja að fiskveiði hafi glæðst þá verulega og mokfiskaðist af ýsu og þorski á línu og í net. Veiðar í dag eru ekki taldar sambærilegar og voru þá en fyrir tíu árum síðan voru veiðar með dragnót leyfðar á ný í Faxaflóa og þá í tilraunaskyni. Fjórir til fimm bátar fengu leyfi á kolaveiðar. Nú hafa þessar tilraunaveiðar staðið yfir í tíu ár og í stað fjögurra báta sem fengu reynsluleyfi stunda 15 bátar nú dragnótaveiðar í Faxaflóa. Þessar kolaveiðar eru án efa ábatasamar og góð búbót fyrir þá sem stunda þessar veiðar því að verð á sandkola og skarkola hefur verið gott og eflaust miklir hagsmunir í veði fyrir þessa aðila, en það eru líka miklir hagsmunir í veði fyrir þá 100 smábáta sem stunda þarna veiðar á bolfiski.
Aðalatriði er að mínu mati að ekki eru til nægilegar rannsóknir og samanburðartölur á veiðum á bannárunum og eftir til að ljóst liggi fyrir hvort verið er að skemma uppvaxtarskilyrði bolfisksins. Því er það eina leiðin að mín mati að draga úr og jafnvel banna dragnótaveiðar í tíu ár nú til að skoða hvort sá tími sem dragnót hefur verið leyfð sé ekki einmitt valdur að því að bæði ýsu- og þorskveiðar hér hafa minnkað.
Virðulegi forseti. Það er mikilvægt að sanna að ekki sé verið að eyðileggja mikilvægar uppeldisstöðvar með dragnótaveiðum í Faxaflóa og því legg ég þessa fsp. fram til hæstv. sjútvrh.