Össur Skarphéðinsson
:
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að blanda mér í umræðurnar um dragnótaveiðar. Hins vegar vil ég í tilefni af því sem fram kom hjá hv. þm. Ingibjörgu Pálmadóttur segja þetta: Hún vísar til þess að afli á sóknareiningu hefur minnkað en það hefur komið hér fram fyrr í umræðum að það er stefna hæstv. sjútvrh. og Hafrannsóknastofnunarinnar að taka ekki mark á því. Það er bersýnilegt, eins og kom hér fram í umræðum um keiluna áðan, að þegar afli minnkar á sóknareiningu þá draga þeir ekki sömu rökréttu ályktun af því og aðrir.