Heilbrigðisráðherra (Sighvatur Björgvinsson)
:
Virðulegi foreti. Fyrri fsp. hljóðar svo:
,,Til hvaða ráðstafana hyggst heilbrrn. grípa til þess að bæta kjör og aðbúnað aldraðra í tilefni af ári aldraðra 1993?``
Þessi fsp. virðist vera á misskilningi byggð. Þeim misskilningi að Ísland sé aðili að ákvörðun um ár aldraðra 1993. Svo er ekki. Svokallað öldrunarár Evrópu 1993 er hugmynd á vegum Evrópubandalagsins. EFTA-þjóðirnar hafa ekki tekið þátt í þeim undirbúningi að öðru leyti en því að sumar þeirra hafa sent áheyrnarfulltrúa á undirbúningsfundi Evrópubandalagsins en aðrar, og þar á meðal Íslendingar, fengið fundargerðir af þessum fundum.
Hér er því alls ekki um að ræða ár aldraðra í þeim skilningi sem hv. fyrirspyrjandi virðist halda, því hér er aðeins um að ræða ákvörðun Evrópubandalagsríkja og eins og kunnugt er er Ísland ekki aðili að Evrópubandalaginu og aðild að Evrópubandalaginu ekki einu sinni á dagskrá hér á Íslandi.
Síðasti undirbúningsfundur Evrópubandalagsins um þetta mál var haldinn 14. des. sl. og okkur er ekki kunnugt um að nein EFTA-þjóð hafi tekið formlega afstöðu til málsins sem sérstaks árs Evrópuþjóða. Með vísan til þess sem hér hefur verið sagt ítreka ég að ár aldraðra í Evrópu er aðeins ákvörðun Evrópubandalagsríkjanna en ekki með aðild EFTA-þjóða og ekki heldur með aðild þeirra þjóða í Evrópu sem utan þessara bandalaga standa.
Í öðru lagi spyr hv. þm. hvort heilbrrn. hafi uppi ákvörðun sem líkist því á einhvern hátt sem gripið var til í tilefni af ári aldraðra árið 1982. Svo er að sjálfsögðu ekki vegna þess að engin ákvörðun hefur verið tekinn um það af hálfu Íslendinga eða annarra EFTA-þjóða um það atvik sem hv. þm. spyr um. Þannig að þetta er fsp. á misskilningi byggð.
Hins vegar eru öll ár á Íslandi ár aldraðra. Ég vil gjarnan upplýsa hvað verið er að undirbúa í sambandi við árið 1993. Í fyrsta lagi vil ég upplýsa að á fyrsta heila ári ríkisstjórnarinnar árið 1992 voru teknar í notkun á annað hundrað þjónustu- og hjúkrunarrými fyrir aldraðra. Á síðasta ári fráfarandi ríkisstjórnar sem hún lagði grundvöll að, þ.e. árinu 1991 voru tekin í notkun sjö rými. Á árinu 1992 tókst í fyrsta skipti að uppfylla allar þarfir fyrir heimahjúkrun og hvíldarinnlagnir aldraðra á Reykjavíkursvæðinu. Það hefur verið lagður grundvöllur að því að það verði áfram unnt að gera á árinu 1993.
Í upphafi þess árs hefur verið samið við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri um sérstakt tilraunaverkefni um starfrækslu fimmdagadeildar fyrir aldraða og verður það tilraunaverkefni í þrjá mánuði. Það er í fyrsta skipti sem slík tilraun hefur verið gerð.
Þá er verið að undirbúa að hefja kennslu í öldrunarfræðum, bæði við læknadeild Háskóla Íslands og einnig í framhaldsskólum. Þá hefur samstarfsnefnd aldraðra verið að kanna hvernig megi koma á alþjóðlega viðurkenndum mælingum á þjónustustörf innan stofnana líkt og komið hefur verið á um vistunarmat. Árið 1993 verður fyrsta árið þar sem liggur fyrir vistunarmat á vistunarþörf aldraðra í öllum kjördæmum landsins.
Í september nk. er gert ráð fyrir að samstarfsnefnd Norðurlanda í öldrunarmálum þingi hér á landi og þá mun ráðuneytið nota tækifærið og boða til fundar með þeim aðilum sem vinna að öldrunarmálum hér á landi og þeim norrænu gestum sem hér verða. Þá má minna á að ýmis rannsóknarverkefni eru í gangi, svo sem samnorræn rannsókn á högum 80 ára og eldri svo og samanburðarverkefni fimm bæja á Norðurlöndum með 15--20 þús. íbúa þar sem Akureyri hefur verið valin sem fulltrúi Íslands. Þá greiðir ráðuneytið einnig kostnað af sérstöku rannsóknarverkefni á vegum Akureyrarbæjar og yfirvalda þar um samstarf um heimahjúkrun og heimaþjónustu og liggur niðurstaða fyrir af þeim athugunum.
Virðulegur forseti. Ég hef hér rakið þær aðgerðir sem eru í undirbúningi og er verið að framkvæma á árinu 1993. En ég ítreka að fsp. hv. þm. byggist á misskilningi.