Forseti (Gunnlaugur Stefánsson)
:
Í tilefni af fyrirspurn hv. 6. þm. Vestf. verð ég að vekja athygli hans á 49. gr. þingskapa þar sem greinilega er kveðið á um það hver ræðutími skuli vera þegar fyrirspurnir eru á dagskrá. Forseta er falið það verkefni að stjórna fundi. Hann hefur til þess ýmis ráð, m.a. að vekja athygli hv. þm. á því að ræðutími þeirra sé úti með því að gefa hljóðmerki með bjöllunni eins og hann hefur gert, vekja athygli hv. þm. á því, eins og hann hefur ítrekað gert áður, að það eru ljós í borði sem gefur hv. þm. til kynna hvað tíma líður og einnig er klukka í ræðupúlti. Þegar allt um þrýtur, þá er forseta falið af hv. þm. að hafa stjórn á fundi og hann grípur ekki fram í mál hv. þm. fyrr en honum sýnist hann hvorki hafa tekið eftir klukku, ljósi né bjöllu.