Kristín Ástgeirsdóttir
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Það vekur nokkra furðu að heyra í fulltrúum þessarar ágætu nefndar hve þeim þykir þetta starf ómerkilegt og gott ef ekki leiðinlegt sem á sér stað á þessum vettvangi. Það hljóta að vakna spurningar um það hvort það sé yfir höfuð nauðsynlegt að taka þátt í þessu starfi og hvort ekki sé betra að hlífa þingmönnum við þessum leiðindum og ósigrum og spara þar með fé á vegum Alþingis. En ég spyr í fullri alvöru: Er ástæða til að taka þátt í þessu samstarfi ef þingmenn eru þeirrar skoðunar að það skili harla litlu?