Þingmannanefnd Fríverslunarsamtaka Evrópu 1992

127. fundur
Fimmtudaginn 11. mars 1993, kl. 14:32:20 (5975)

     Páll Pétursson (andsvar) :
    Frú forseti. Ég er ekki rétti maðurinn til þess að svara þessu vegna þess að það er nokkuð um liðið síðan ég sá dagskrá þessarar ráðstefnu. Hún er kostuð af Evrópuþinginu eða Evrópubandalaginu með einhverjum hætti. Ég held að Íslendingar eigi ekki að bera af henni kostnað nema einhver matarboð munu vera eða einhver risna frá Íslands hendi.
    Nú man ég ekki hér og nú hverjir voru íslenskir fyrirlesarar þarna en ég man nokkurra Íslendinga var getið í þessari upptalningu. Sumir þeirra voru gestgjafar og kannski allir. Mig minnir að formaður utanrmn. hafi verið þar nefndur --- það mun ekki vera. En gott ef forsrh. og utanrrh. ætluðu ekki eitthvað að sinna þessum gestum. Ég segi þetta með öllum fyrirvara vegna þess að ég er ekki með þessa skrá með mér handbæra og nokkuð langt síðan ég las hana.