Sóttvarnalög

127. fundur
Fimmtudaginn 11. mars 1993, kl. 18:18:33 (6007)

     Heilbrigðisráðherra (Sighvatur Björgvinsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Mér er það ljóst að hv. 4. þm. Suðurl. var ekki viðstödd þegar málið var rætt síðast. Þess vegna lagði ég mig fram um það að svara því sem hún kom fram með því það hafði ekki verið rætt áður. Ég tók hins vegar fram um ýmislegt sem fram kom í máli annarra að ég ætlaði ekki að fara að endurtaka umræðurnar frá því síðast fremur en t.d. hv. 10. þm. Reykv. gerði. Ég tel ekki að hv. 4. þm. Suðurl. þurfi að kvarta yfir því að ráðherra hafi ekki svarað því sem hún kom fram með eða gert nokkrar athugasemdir við það sem hún sagði.