Sóttvarnalög

127. fundur
Fimmtudaginn 11. mars 1993, kl. 18:19:25 (6008)

     Margrét Frímannsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég var ekki að kvarta yfir þeim svörum sem ég fékk, þau voru skýr og góð, en hins vegar fundust mér þessi ummæli ekki vera rétt að við ættum ekki að endurtaka þá umræðu sem hefur farið fram áður þegar við sjáum að frv. er lagt fram algjörlega óbreytt þrátt fyrir umræðu á síðasta ári.