Umhverfisskattar

128. fundur
Mánudaginn 15. mars 1993, kl. 13:36:56 (6027)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Það er tillaga um að vísa þessu máli til umhvn. ( ÓÞÞ: Forseti. Það er athugasemd við að vísa málinu til umhvn. Það er út í hött.) Það er tillaga um að vísa málinu til umhvn. og ef gerðar eru athugasemdir við það þá fer nú fram atkvæðagreiðsla um þá tillögu. ( Fjmrh.: Ég óska eftir að atkvæðagreiðslunni verði frestað.) Eftir því sem forseti heyrir hefur hæstv. fjmrh. óskað eftir því að fresta þessari atkvæðagreiðslu og verður orðið við því.