Samskipti fjármálaráðuneytis og Ríkisendurskoðunar

129. fundur
Þriðjudaginn 16. mars 1993, kl. 13:58:38 (6075)

     Guðrún Helgadóttir :
    Hæstv. forseti. Ég vil biðja afsökunar á þessu en þetta voru upplýsingar sem ég fékk hér úr forsetastóli í gær en það er þá kannski til umhugsunar að hér skuli liggja óræddar þrjár skýrslur Ríkisendurskoðunar því fátt ætti nú að vera áhugaverðara fyrir hv. þingheim en að fylgjast með afkomu þjóðarbúsins og endurskoðun á henni. En ég þakka fyrir þessar upplýsingar og þeim mun heldur er mál að ræða málefni Ríkisendurskoðunar.