Guðjón Guðmundsson
(andsvar)
:
Hæstv. forseti. Ég skildi nú ekki alls kostar þetta andsvar eða tilganginn með því. Mér er alveg kunnugt um hvaða gang þetta mál hefur haft hér í þinginu, þetta er gott og þarft mál sem nú hefur fengið ágætan framgang. Það var eins og hv. þm. Stefán Guðmundsson tekur fram, samþykkt þáltill. sem hann var held ég 1. flm. að. Fsp. mín í fyrra gekk út á það hvaða framgang þetta mál mundi hafa hjá hæstv. ráðherra. Ég sé enga ástæðu til þess að við séum að karpa um það hér hvaða gang þetta hefur haft. Aðalatriðið er að nú er málið komið fram, þarft mál og gott sem allir fagna.