Jón Kristjánsson :
Virðulegi forseti. Þetta mál sem hér er komið til 2. umr. er dæmi um mál þar sem Alþingi er notað sem stimpilstofnun. Maður getur ekki varist því að hugsa til þess ef þau lagaákvæði sem hér um ræðir eru þess eðlis að ekki þarf að fara eftir þeim fyrr en eftir á, hvers vegna þeim er þá ekki breytt. Það er hálfhjákátlegt að vera að samþykkja lög sem leyfa innflutning gröfupramma sem er búið að flytja inn. Hann er búinn að vinna sitt verk og sökkva einu sinni og síðan erum við með frv. í þinginu um að leyfa innflutning á þessu tæki.
Þetta leiðir hugann að mörgu öðru og ég hálfvorkenni hv. 2. þm. Norðurl. v. að mæla fyrir þessu máli því ég veit að það er ekkert í hans anda að standa svona að málum. Hins vegar leiðir þetta hugann að fjölmörgum öðrum málum þar sem farið er á svig við settar reglur í samskiptum framkvæmdarvalds og löggjafarvalds. Ég get ekki að mér gert, einmitt við umræðu þegar við erum að afgreiða þetta mál, að minna á að það er náttúrlega alveg óhæfa að framkvæmdarvaldið sniðgangi löggjafarvaldið með þeim hætti sem verið hefur undanfarið. Það er t.d. alveg óhæfa að fara að framkvæma lög um Húsnæðisstofnun ríkisins sem eru til meðferðar í félmn. Alþingis eins og er raunin á þar sem hönnunardeild Húsnæðisstofnunar er seld meðan lögin sem heimila niðurlagningu hennar eru fyrir Alþingi. Sjávarútvegsstefnuna á að endurskoða í samvinnu við sjútvn. Alþingis. Sú samvinna hefur alls ekki verið fyrir hendi. Það er af nógu að taka í þessum efnum. Það má minna á vegagerð, skiptingu vegafjár og útboð á framkvæmdum sem er ekki í samræmi við gildandi vegalög.
Ég vil bara við þessa umræðu minna á að auðvitað verða handhafar framkvæmdarvaldsins að taka upp einhverjar skikkanlegar umgengnisreglur við þingið. Það ætti að vera hlutverk forustu þingsins að hafa frumkvæði í því að spyrna við fótum vegna þess að umgengnishættir við Alþingi eru að verða algjör óhæfa af hálfu framkvæmdarvaldsins.
Þetta vildi ég að kæmi fram. Að öðru leyti ætla ég ekki að orðlengja um þetta mál. Ég tek sjálfsagt þátt í því í þetta sinn með öðrum þingmönnum að reka stimpilinn á þetta mál en þetta er að verða svolítið þreytandi.