Alþjóðareglur til að koma í veg fyrir árekstra á sjó

133. fundur
Fimmtudaginn 18. mars 1993, kl. 13:49:58 (6197)

     Frsm. allshn. (Sólveig Pétursdóttir) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 744 frá allshn. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 7/1975, um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að staðfesta fyrir Íslands hönd samþykkt um alþjóðareglur til að koma í veg fyrir árekstra á sjó, 1972, sbr. lög nr. 56/1986 og lög nr. 25/1990.
    Nefndin hefur fjallað um málið og mælir hún með samþykkt þess.
    Frv. var sent til umsagnar utanrmn. sem gerði ekki athugasemdir við það.
    Fjarstaddir afgreiðslu málsins voru Ingi Björn Albertsson og Ólafur Þ. Þórðarson.

    Einstakir nefndarmenn áskilja sér rétt til að flytja brtt. eða fylgja þeim sem fram kunna að koma.
    Undir álitið skrifa Sólveig Pétursdóttir, Anna Ólafsdóttir Björnsson, Björn Bjarnason, Eyjólfur Konráð Jónsson, Jón Helgason, Kristinn H. Gunnarsson og Sigbjörn Gunnarsson.