Eiginfjárstaða innlánsstofnana

135. fundur
Föstudaginn 19. mars 1993, kl. 15:21:56 (6297)


     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég kem hér fyrst og fremst til að taka fram að þetta mál er vandlega undirbúið. Það hefur verið mjög náið og gott samstarf milli viðskrn., bankaeftirlits og Landsbankans um þetta mál eins og óræk vitni hafa verið fram færð um. Ég bendi þar síðast til yfirlýsingar bankastjórnar Landsbankans í Morgunblaðinu í morgun. Það er einfaldlega staðreyndin í málinu eins og hv. efh.- og viðskn. hefur fengið að heyra af samtölum sínum, m.a. við endurskoðendur og bankaeftirlitsstarfsmenn, að þetta mál á sér langan aðdraganda, og í því eru ekki lausir þræðir.