Dagskrá

135. fundur
Föstudaginn 19. mars 1993, kl. 15:37:00 (6300)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti skilur ekki alveg hvers vegna hv. þm. er að mótmæla því. Það er gert ráð fyrir því að það sé fundur á þessum föstudegi og nú er ætlunin að taka fyrir þessar tvær skýrslur. Klukkan er aðeins rúmlega hálffjögur og forseti hafði vænst þess að annars vegar hæstv. ráðherra og hins vegar hv. þm., sem munu mæla fyrir þessum skýrslum, gætu gert það. Það hefur ekki komið tilkynning frá þeim um að þeir væru ekki tilbúnir að taka þessi mál fyrir í dag.