Dagskrá

135. fundur
Föstudaginn 19. mars 1993, kl. 15:49:18 (6309)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti vill upplýsa hv. þm. um að þeir fundir sem haldnir hafa verið á föstudögum, hafa ætíð hafist klukkan hálfellefu.
    Forseti vill jafnframt upplýsa að forseti hefur átt mjög gott samstarf við formenn þingflokka og það hafa verið haldnir líklega einir þrír fundir í þessari viku með formönnum þingflokka um þinghaldið og síðast fundur var haldinn í gær.