Dagskrá

135. fundur
Föstudaginn 19. mars 1993, kl. 15:51:15 (6311)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
    Forseti vill minna á að þessi mál voru t.d. á dagskrá í gær svoleiðis að hv. þm. hafa vitað að það væri fram undan að ræða þessi mál, en eins og allir vita þá fór nokkuð úr skorðum sú dagskrá sem við höfðum gert fyrir þessa viku. Það var m.a. vegna þess góða samstarfs, sem hér tókst á milli allra þingflokka að greiðlega tókst að koma því máli, sem við höfum nú lokið við að afgreiða, í gegnum þingið.