Umhverfisráðherra (Eiður Guðnason)
:
Virðulegi forseti. Varðandi það sem hv. 3. þm. Vesturl. sagði áðan þá er auðvitað rétt að það komi fram að þegar þessi mál voru á dagskrá í gær, á prentaðri dagskrá að ég hygg, þá mun það hafa verið í a.m.k. annað skipti í þessari viku sem svo var. Síðan var tilkynnt af forsetastóli í morgun að þessi mál yrðu á dagskrá í dag og í þriðja lagi þegar prentaðri dagskrá þessa fundar var dreift fyrir tveimur eða þremur klukkutímum þá eru þessi mál á dagskrá. Mín athugasemd var eingöngu sú að þessi beiðni Alþb. væri seint fram komin. Ég hygg að það sé alveg rétt og því verði ekki með neinum rökum mótmælt.