Umhverfisráðherra (Eiður Guðnason)
:
Virðulegi forseti. Auðvitað er sjálfsagt mál að láta spyrjast fyrir um þetta, en ég heyrði ekki betur en hv. þm. fullyrti að akstur á snjó hefði valdið verulegum spjöllum og væri þá afar fróðlegt að fá að vita um þau dæmi sem hún vill tiltaka um það. Hversu mikið sem menn vilja beita stjórnlyndi og bönnum held ég að óframkvæmanlegt sé að banna allan akstur utan vega á snjó. Ég held að það sé einfaldlega ekki framkvæmanlegt og bendi þar að auki á að flestir þessara bíla eru á mjög breiðum hjólbörðum þannig að þungi þeirra dreifist miklu meira en þegar bílar á mjóum dekkjum skera sig niður í gegnum hjarn eða fönn. Ég held að hv. þm. geri sannarlega allt of mikið úr því sem hér er um að ræða.