Forsætisráðherra (Davíð Oddsson)
:
Hæstv. forseti. Ég get tekið undir það með hv. þm. að það er afskaplega mikilvægt fyrir framtíðarstöðu íslensks atvinnulífs að stuðla að því að hjól atvinnulífsins taki að snúast á nýjan leik, að menn hafi fast land undir fótum í samningum. Vegna þess að hann spurði sérstaklega um þær hugmyndir sem hafa verið kynntar af hálfu aðila vinnumarkaðarins gagnvart ríkisstjórninni, annars vegar sameiginlegar tillögur sem voru ekki mjög margar og hins vegar hugmyndabanka, ef svo má kalla, sem lagður var fram, er því til að svara að síðan það gerðist hefur sú mynd komið upp að Vinnuveitendasambandið telur að skoða þurfi allar efnahagsforsendurnar á nýjan leik áður en menn gangi til síðasta skrefs í samningum. Þetta hefur komið glöggt fram bæði inn á við og jafnframt opinberlega. Þá eru menn að horfa til þeirrar verðlækkunar sem áðan var rædd á mikilvægustu afurðum okkar erlendis. Því er ekki efni til þess að ríkisstjórnin spili út hugmyndum sínum eða hvað hún getur gert í þröngri stöðu fyrr en þessar grundvallarforsendur liggja ljósar og skýrar fyrir en þær liggja fyrir nú.