Bann við verkfalli og verkbanni á ms. Herjólfi

138. fundur
Þriðjudaginn 23. mars 1993, kl. 15:12:56 (6372)

     Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) :
    Hæstv. forseti. Frv. um bann við verkfalli og verkbanni á ms. Herjólfi felur það í sér að við gildistöku laganna verður verkfall Stýrimannafélags Íslands á ms. Herjólfi bannað, svo og verkbönn, verkföll og aðrar aðgerðir sem ætlað er að knýja fram aðra skipan kjaramála en lögin ákveða.
    Í 2. gr. frv. er kveðið á um að samningsaðilar skuli hafa svigrúm til 1. júní nk. til þess að ná samkomulagi um vinnutilhögun og launakjör, en ef það tekst ekki skuli Hæstiréttur tilnefna þrjá menn í gerðardóm sem skuli ákveða vinnutilhögun, kaup og kjör skipverja á Herjólfi fyrir 1. ágúst nk. Jafnframt skal Hæstiréttur kveða á um það hver hinna þriggja gerðardómsmanna skuli vera formaður dómsins.
    Gerðardómurinn skal setja sér starfsreglur, afla nauðsynlegra gagna og segir að honum sé rétt að krefjast skýrslna, munnlegra og skriflegra, af einstökum mönnum, opinberum aðilum og fyrirsvarsmönnum Herjólfs og eftirtalinna stéttarfélaga sem eru samningsaðilar að þeim kjarasamningum sem ná til starfsmanna Herjólfs, þ.e. Skipstjórafélags Íslands, Stýrimannafélags Íslands, Vélstjórafélags Íslands, Brytafélags Íslands og Sjómannafélagsins Jötuns í Vestmannaeyjum. Gerðardómurinn skuli við ákvörðun vinnutilhögunar, kaups og kjara samkvæmt lögunum hafa hljóðsjón af gildandi kjarasamningum á kaupskipum og hafa hliðsjón af almennri launaþróun í landinu. Hann skal vera bindandi við báða málsaðila.
    Frv. þetta er flutt í samræmi við svohljóðandi ályktun sem bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti samhljóða á fundi sínum 16. mars sl., með leyfi hæstv. forseta:
    ,,Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkir að óska eftir við ríkisstjórn Íslands að flutt verði frv. til laga á Alþingi til að binda enda á kjaradeilur, verkfall og verkbann, á ms. Herjólfi.
    Bæjarstjórn Vestmannaeyja áréttar að óhjákvæmilegt er að í lögunum verði tekið á kjarasamningum allra stéttarfélaga sem aðild eiga að deilunni og málið þannig leyst í heild sinni.
    Það er orðið mjög brýnt fyrir Vestmannaeyinga að þessari deilu ljúki sem fyrst því að skipið er helsta samgöngutæki Eyjanna og hefur verið úr rekstri í sex vikur nú þegar og ekki er útlit fyrir að lausn finnist í deilunni.``
    Þetta var ályktun bæjarstjórnar Vestmannaeyja sem samþykkt var samhljóða.
    Verkfall stýrimanna á Herjólfi hófst 3. febr. og hefur skipið legið bundið við bryggju í Vestmannaeyjum frá þeim degi. Á Herjólfi eru tvö stöðugildi stýrimanna. Sáttatilraunir bæði hjá ríkissáttasemjara og milli deiluaðila sjálfra hafa verið árangurslausar og eru engar líkur á lausn deilunnar í bráð. Stjórn Herjólfs hf. ákvað 16. mars með samþykki framkvæmdastjórnar Vinnuveitendasambands Íslands að leggja verkbann á alla skipverja og ætti það verkbann að öðru óbreyttu að taka gildi á morgun. Það er ljóst að vinnustöðvun stýrimanna hefur þegar haft áhrif á atvinnuöryggi annarra skipverja auk þess sem atvinnuöryggi þeirra sem með beinum eða óbeinum hætti hafa atvinnu af rekstri og þjónustu skipsins er teflt í tvísýnu.

    Ekki þarf að fara mörgum orðum um hvaða þýðingu rekstur Herjólfs hefur fyrir íbúa Vestmannaeyja en honum er ætlað að halda uppi daglegum áætlunarferðum milli lands og eyja. Verkfallið hefur þegar valdið margvíslegri röskun og tjóni, vöruskorts er farið að gæta og aðdrættir allir dýrari en ella. Brýna nauðsyn ber því til að binda enda á deilurnar sem stöðva siglingu Herjólfs milli lands og eyja.
    Þessu til viðbótar vil ég taka það fram að ég hef nú eftir að þessi ályktun var samþykkt haft samband við forustumenn Vestmannaeyinga, við formann Stýrimannafélagsins, sáttasemjara og vinnuveitendur og það eru ekki horfur á að samningar geti tekist og þess vegna er það mat mitt að óhjákvæmilegt sé að flytja þetta frv.
    Ég vil taka það fram að sáttasemjari hafði samband við fulltrúa í stjórn Herjólfs, Vinnuveitendasambands, stýrimanna og Sjómannafélagsins Jötuns í morgun og það er hið sama að segja og áður að þeir óskuðu ekki eftir því að sáttasemjari boðaði til fundar eða hefði afskipti af málinu þar sem þeir sáu ekki fram á að neinar líkur væru til þess að slíkt mundi bera árangur. Í samræmi við ósk bæjarstjórnar Vestmannaeyja hefur ríkisstjórnin að höfðu samráði við formenn stjórnarandstöðuflokka ákveðið að leggja þetta frv. fram. Það hefur orðið að samkomulagi að frv. gangi í gegnum þrjár umræður nú.
    Að lokinni 1. umr. legg ég til að málinu verði vísað til 2. umr. og samgn. en hlé verði gert á fundum þingsins meðan hún hittist og síðan verði fundum haldið áfram og málinu lokið.