Bann við verkfalli og verkbanni á ms. Herjólfi

140. fundur
Þriðjudaginn 23. mars 1993, kl. 17:15:09 (6383)

     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
    Virðulegi forseti. Við kvennalistakonur teljum ekki rétt að grípa inn í vinnudeilur með lagasetningu sem þessari eins og ég hef áður gert grein fyrir hér. Þar að auki er hér verið að setja lög á aðra starfsmenn en þá sem ollu deilunni og sem ekki eiga í vinnudeilum. Ég segi nei.