Varamaður tekur þingsæti

146. fundur
Mánudaginn 29. mars 1993, kl. 13:33:01 (6517)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Borist hefur eftirfarandi bréf, dags. 29. mars 1993:
    ,,Þar sem ég vegna sérstakra anna get ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Alþb. í Vestfjarðakjördæmi, Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaforseti Alþýðusambands Vestfjarða, Suðureyri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Kristinn H. Gunnarsson, 5. þm. Vestf.
``

    Kjörbréf Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur hefur verið rannsakað. Hún hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og mun nú vinna drengskaparheit að stjórnarskránni.