Tilkynning um utandagskrárumræðu

148. fundur
Miðvikudaginn 31. mars 1993, kl. 13:34:01 (6603)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Áður en gengið er til dagskrár vill forseti minna á að hér fer fram að lokinni atkvæðagreiðslu utandagskrárumræða að beiðni hv. 14. þm. Reykv., Guðrúnar Helgadóttur, og er um ábyrgðir vegna lífeyrisgreiðslna 20 starfsmanna Sambands ísl. samvinnufélaga. Þessi umræða fer fram samkvæmt síðari mgr. 50. gr. þingskapa.