Ábyrgðir á lífeyrisgreiðslum Sambandsins

148. fundur
Miðvikudaginn 31. mars 1993, kl. 15:51:55 (6618)

     Ólafur Ragnar Grímsson :
    Virðulegi forseti. Ég tel afar mikilvægt að hæstv. viðskrh. hefur staðfest í umræðunum að eftirlaunaskuldbindingar þeirra fyrirtækja sem Landsbankinn yfirtók og tilheyrðu Sambandinu hljóti að hafa áhrif á markaðsverð þeirra hlutabréfa sem Landsbankinn á í þessum fyrirtækjum. Það er mjög mikilvægt að það hefur komið fram í umræðunni og staðfest af ráðherra að svo sé.