Fyrirspurn um bætur vegna þorskaflabrests

150. fundur
Fimmtudaginn 01. apríl 1993, kl. 13:40:16 (6687)

     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
    Hæstv. forseti. Þetta er hárrétt hjá þingmanninum. Það hefur dregist að þessari fsp. hafi verið svarað og auðvitað er það við mig að sakast en ekki forseta þingsins. En það er rétt að geta þess, sem menn vita, að í raun hefur þessari spurningu margoft verið svarað í umræðum um einstaka þætti hér í þinginu þannig að það hefur ekki komið að sök og þar hefur þess verið getið að þetta mál yrði til lykta leitt um leið og niðurstaða fengist varðandi þróunarsjóð. Það hef ég margoft tekið fram og þetta hafa þingmenn vitað.