Frsm. minni hluta iðnn. (Finnur Ingólfsson)
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Af bréfi bæjarstjórnar og ályktun sem hér liggur fyrir er ekki hægt að lesa það að bæjarfulltrúar Sjálfstfl. hafi setið hjá vegna þess að það segir svo, með leyfi forseta:
,,Að báðu þessu athuguðu mælist því bæjarstjórn Akraness til þess að frv. verði ekki samþykkt.``
Það kemur ekki fram hvernig atkvæði hafa fallið eða hvort einhver hafi setið hjá og það er ekkert um það í ályktuninni. Síðan kemur bókunin og mér finnst hún í algerri andstöðu og þversögn við það sem þarna hefur verið samþykkt. ( Gripið fram í: Það er af því að þeir eru ekki sammála því.) Af því að þeir eru ekki sammála því? Þá hefði auðvitað verið eðlilegt að það kæmi fram að þeir væru ekki sammála því. ( Gripið fram í: Það kemur fram í bókuninni.) Það kemur fram í bókuninni en það er ekkert hægt að lesa út úr ályktuninni frá bæjarstjórninni annað en þeir hafi staðið að þessu.